Hvað þýða vikudagarnir?

sunnudagur sunna er sama og sól
sunnudagur er því sól og dagur
mánudagur máni er sama og tungl
mánudagur er því máni og dagur
þriðjudagur þriðji er bara númer þrjú!
þriðjudagur er þriðji dagurinn í vikunni
miðvikudagur mið - er miðja
viku - er vika
miðvikudagur er dagurinn í miðjunni
fimmtudagur fimmti er bara númer fimm!
fimmtudagur er fimmti dagurinn í vikunni
föstudagur fasta er að borða ekki kjöt
föstudagur er því dagur sem ekki er borðað kjöt
laugardagur lauga er að þvo sér
laugardagur er því dagur til að fara í bað!
   
En, þetta var ekki alltaf svona! 
Prestum á Íslandi fannst Íslendingar ekki vera kristnir. 
Þeim fannst Íslendingar vera bara að hugsa um gömlu guðina og gyðjurnar. 
Og af því að sumir dagar báru heiti gömlu guðanna úr Ásatrú,
þá vildu þeir breyta því og gerðu það!
Einu sinni voru dagaheitin svona á Íslandi
áður en þeim var breytt. 
sunnudagur sól og dagur
mánudagur máni og dagur
týsdagur Týr, guð hernaðar og sonur Óðins
óðinsdagur Óðinn, æðstur guða í ásatrú. 
þórsdagur Þór, þrumuguð og sterkastur ása.
frjádagur Freyja var frjósemisgyðja/ástargyðja í Ásatrú.
þvottadagur/laugardagur þvo eða lauga
Hér sjáið þið tenglsin við önnur tungumál!