|

Forkröfur: Tölva og góð nettenging og heyrnartól með hljóðnema.
Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem hefur lært ítölsku áður og hefur
lært grunnatriði í málfræði og daglegum orðaforða en myndi vilja
byggja ofan á þann orðaforða og æfa sig að tala.
Námsefni: Hver vika er þemaskipt og fá nemendur efni til að
undirbúa sig fyrir taltímana.
Áhersla verður á að nemendur fái þjálfun í að tala um ítalskan veruleika
og nái valdi á orðaforða sem nýtist m.a. á ferðalögum og við almennar
umræður um Ítalíu og það sem er ítalskt.
Efnið er allt um Ítalíu, dægurmenningu, landafræði og sögu.
Nemendur fá undirbúningsefni á netinu hjá Tungumálaskólanum sem hægt er
að lesa og glósa þegar fólk hefur tíma í vikunni sem er á milli taltíma.
Um taltímana: Taltímarnir fara
fram á gagnvirku spjallborði WizIq - en það er ókeypis umhverfi á netinu
fyrir nemendur, ekkert forrit sem þarf að hlaða niður, bara skrá sig
inn.
Allir geta skrifað, sett inn efni s.s. myndir o.fl. Í kerfinu geta allir
verið í mynd og því er reiknað með að allir nemendur verði með
vefmyndavélar.
Kennsla fer fram á ítölsku, en kennari talar
einnig íslensku og ensku.
Reiknað er með frumkvæði og tillögum frá nemendum á
námstímanum, að þeir/þær velji sér verkefni og umfjöllunarefni eftir
áhugasviðum. Dæmi um viðfangsefni í tímum:
- Hvenær varð ítalska til? Hversu margar mállýskur eru á Ítalíu?
Er Ítalía gamalt heimsveldi eða ungt land í þeirri mynd sem það er núna?
Af hverju er ekki lengur kóngur á Ítalíu? Hversu mörg héruð eru á
Ítalíu og hvað einkennir þau? Þ.e. hvað er ræktað og framleitt,
hvaða staðir eru áhugaverðir sögulega eða tengjast fjölbreyttu lífi
(t.d. listir, tíska, hönnun, matarmenning o.fl.) sem gaman væri að
kynnast með því að ferðast þangað.
Nemendur velja sér héruð til að fjalla um í taltíma.
- Matar- og vínmenning, uppskriftir skoðaðar m.a. út frá mismunandi
hráefni eftir héruðum og árstíðum. - Og hvernig segir maður hangikjöt og
uppstúfur á ítölsku?
Nemendur velja uppskriftir til að fjalla um í taltíma.
- Hvað er að gerast á Ítalíu í dag? Greinar úr dagblöðum valdar af
kennara og nemendum ef áhugi er fyrir hendi.
- Nemendur ljúka námskeiðinu með stuttu munnlegu verkefni um eitthvað
ítalskt - að eigin vali.
|